LAUSNIR FYRIR IÐNAÐ & SJÁVARÚTVEGStrikamerki hefur byggt upp lausnir og þjónustu við iðnað og sjávarútveg um árabil, sérstaklega á sviði prentlausna.
PrentlausnirIceLabel prentkerfi frá Strikamerki eru notuð í íslenskum sjávarútvegi og framleiðslufyrirtækjum við daglega miðaprentun og stjórnun sjálfvirkra álímingakerfa. Hönnun IceLabel byggir á áratugasamstarfi við sjávarútvegs- og framleiðslufyrirtæki. Kerfið býður upp á einfalt viðmót á snertiskjá og keyrir á PC tölvum (sjálfstæðum eða nettengdum). Miðahönnun fer fram í BarTender en kerfið prentar annað hvort beint á prentara eða með Bartender stýringu. IceLabel býður upp á sjálfvirkan stuðning við SH vinnustöð (staðall fyrir miðaútlit Icelandic Group) og fullkomnar stýringar fyrir dagsetningar, lotur, GS1 strikamerki (EAN-128) o.s.frv. Við höfum tengt kerfið við iðnstýringar og bjóðum framleiðsluskráningu sem tengist Marel MPS með XML/vefþjónustu fyrir stjórnun prentunar á umbúðir, t.d. um borð í vinnsluskipum. LabelAire sjálfvirkar álímingarvélar bjóða upp á sjálfvirkni á viðráðanlegu verði. Við höfum aðlagað IceLabel að stjórnun LabelAire álímingavéla og bjóðum þannig mjög öflugar lausnir sem hafa verið settar upp hjá kröfuhörðum viðskiptavinum, bæði á landi og sjó. Ráðgjafar og tæknimenn okkar búa yfir mikilli reynslu og þekkingu á sjálfvirkni við álímingu á kassa og bretti.
Handtölvulausnir, þráðlaus kerfi og stjórnhugbúnaðurVið seljum bæði handtölvur og "Thin client" tengingar við framleiðslu- og vöruhúsakerfi (Wavelink Telnet Client) og IceLink handtölvukerfi fyrir sérhæfð verkferli á gólfi framleiðslu eða vöruhúss. Þráðlaus netkerfi frá Motorola gegna lykilhlutverki við að tengja vinnslu á gólfi framleiðslunnar við upplýsingakerfi . Tæknimenn Strikamerkis hafa mikla reynslu af hönnun og uppsetningu þráðlausra neta í framleiðsluumhverfi og við komum gjarna inn í verkefni á byggingatíma nýrra húsa. Motorola eru svissuð net af fullkomnustu gerð sem henta einkar vel í Cisco netumhverfi. WaveLink Avalanche Mobility Center stjórnhugbúnaður fyrir eftirlit og stjórnun handtölva og þráðlauss netkerfis. Þegar vöruhús stækka eykst þörfin fyrir samræmdar stillingar og eftirlit með net- og tölvubúnaði. Stærri viðskiptavinir okkar nota Wavelink Avalanche Mobility Center hugbúnað sem gerir tæknimönnum Strikamerkis kleyft að samræma stillingar á búnaði og veita fjarþjónustu við handtölvur niðri á gólfi vöruhússins. Hafðu samband við söluráðgjafa í síma 575 1900 eða með tölvupósti á sala@strikamerki.is og kynntu þér hvaða valkostir henta þér. |

