Lausnir fyrir vöruhús & dreifinguLausnir frá Strikamerki er að finna í flestum vöruhúsum landsins, stórum sem smáum. Vöruúrval okkar á þessu sviði er fjölbreytt, handtölvulausnir fyrir öll helstu ferli á gólfi vöruhúss, prentlaunsir fyrir merkingar á sendingum og brettum, þráðlaus netkerfi o.s.frv. Aðkoma okkar að verkefnum á þessu sviði er einnig mjög fjölþætt, við sinnum vekefnisstjórnun, hönnun verkferla, hugbúnaðargerð, útvegum vélbúnað og tökum að okkur hönnun, framleiðlsu og upplímingu rekkamerkinga fyrir staðsetningar.
Handtölvulausnir og þráðlaus kerfiÞráðlaus netkerfi frá Motorola gegna lykilhlutverki við að framlengja vöruhúsakerfinu niður á gólf vöruhússins þar sem starfsmenn í móttöku, tiltekt, afgreiðslu og vöruflutningum vinna. Tæknimenn Strikamerkis hafa mikla reynslu af hönnun og uppsetningu þráðlausra neta í vöruhúsum og við komum gjarna inn í verkefni á byggingatíma nýrra húsa. Lausnir okkar byggja á Motorola (Symbol) svissuðum þráðlausum netbúnaði, sem henta einkar vel í Cisco netumhverfi, og HP ProCurve víruðum netbúnaði. Handtölvulausnir í vöruhúsum í dag tengjast upplýsingakerfum yfir þráðlaust net. Við seljum bæði handtölvur af ýmsum gerðum og hugbúnað til að tengjast kerfunum, bæði biðlara (thin client) á borð við Wavelink Telnet Client og IceLink handtölvukerfi, þar sem hugbúnaður á handtölvunni heldur utan um verkferli starfsfólks og miðlar gögnum til og frá vöruhúsakerfi viðkomandi fyrirtækis. Einkum er um þrjár útgáfur að ræða af handtölvum í vöruhúsum hér á landi, þ.e. armtölvur með fingurskanna, hefðbundnar handtölvur (lófatölvur) og loks lyftaratölvur, sem festar eru í lyftara og lestur á strikamerkjum fer þá fram með snúrutengdum eða þráðlausum handskanna. Raddstýrð kerfi frá VoCollect. Með VoCollect Talkman getur starfsmaður í vöruhúsi unnið verkefni á borð við tiltekt sölupantana með því að hlusta á fyrirmæli um næstu vöru/staðsetningu og tala við kerfið. Þessi aðferð er orðin mjög algeng í vöruhúsum því hún eykur afköst og minnkar villur við ákveðnar aðstæður. Handtölvur í flutningabíla og IceLink handtölvulausn frá Strikamerki. Handtölva í flutningabíl hefur samskipti við upplýsingakerfi yfir þráðlaust netsamband áður en lagt er af stað í útkeyrslu. Bílstjóri skannar bretti og böggla við afhendingu, viðtakandi kvittar fyrir á skjá handtölvu og upplýsingar eru sendar til baka yfir GPRS eða þegar flutningabíll kemur aftur í vöruhúsið. Þessi lausn eykur nákvæmni við afhendingu og hægt er að nýta upplýsingarnar til að veita betri þjónustu við viðskiptavini.
PrentlausnirMiðaprentun er mjög algeng í vöruhúsum, t.d. merking óstrikamerktra vara og merking vörurbretta og sendinga. Í vöruhúsum er notast við hefðbundna límmiðaprentara sem staðsettir eru í vörumóttöku og eins svonefnda beltisprentara sem starfsmenn fara með um vöruhúsið og stýra prentun frá handtölvu. Við höfum einnig innleitt sjálfvirka brettaálímingu með góðum árangri, þar sem bretti eru merkt á leið sinni út úr sjálfvirkri plöstun.
Wavelink stjórnhugbúnaðurWaveLink Avalanche Mobility Center stjórnhugbúnaður fyrir eftirlit og stjórnun handtölva og þráðlauss netkerfis. Þegar vöruhús stækka eykst þörfin fyrir samræmdar stillingar og eftirlit með net- og tölvubúnaði. Stærri viðskiptavinir okkar nota Wavelink Avalanche Mobility Center hugbúnað sem gerir tæknimönnum Strikamerkis kleyft að samræma stillingar á búnaði og veita fjarþjónustu við handtölvur niðri á gólfi vöruhússins.
Hafðu samband við söluráðgjafa í síma 575 1900 eða með tölvupósti á sala@strikamerki.is og kynntu þér hvaða valkostir henta þér.
|

