Lausnir fyrir verslun & þjónustuVið höfum markvisst aukið vöruúrval okkar fyrir verslunarrekstur og bjóðum nú afgreiðslulausnir, handtölvulausnir, þráðlaus netkerfi og prentlausnir fyrir verslanir og þjónustu úti í bæ. Strikamerki hefur keypt og sameinast KLS, framleiðanda SagaPOS. Með tilkomu SagaPOS erum við komin með frábært vöruframboð fyrir verslunar- og þjónustufyrirtæki. Við bjóðum allt frá einföldum strikamerkjalesara til fullkominna sjálfskönnunarkerfa þar sem almenningur skannar vörur sjálfur. Við bjóðum afgreiðslu- og stjórnhugbúnað fyrir verslanir, þráðlausar handtölvulausnir fyrir daglegan rekstur og öflugan hóp sérfræðinga á sviði þjónustu við upplýsingatækni fyrir verslanir. Aukin áhersla á hugbúnað styður einnig við starfsemi okkar á öðrum sviðum, en lausnir frá Strikamerki koma við sögu í flestum þrepum aðfangakeðjunnar.
AfgreiðslulausnirAuk SagaPOS verslunarhugbúnaðar selur Strikamerki afgreiðslutölvur, snertiskjái, kvittanaprentara, strikamerkjalesara, kortalesara, peningaskúffur og undirskriftarplötur frá DigiPoS, EPSON, Motorola, DataLogic, TOPAZ o.fl.
Handtölvulausnir og þráðlaus kerfiIceLink handtölvuhugbúnaður frá Strikamerki nýtur mikilla vinsælda meðal íslenskra verslunarfyrirtækja enda byggir lausnin á vel útfærðum ferlum og stöðugum en sveigjanlegum hugbúnaði. Dæmi um ferli eru innkaup, móttaka, verðeftirlit, prentun hillumiða, millifærslur, rýrnun, móttaka o.s.frv. Við tengjum handtölvur við allar helstu gerðir af upplýsingakerfum, t.d. Microsoft Dynamics Navision og Ax (Axapta), XAL, SAP, SagaPoS, dK og Stólpa. Gagnasamskipti eru útfærð yfir þráðlaust net, GPRS eða vöggu og hugbúnaðurinn tengist við SQL, vefþjónustur og XML eða textaskrár, allt eftir því sem hentar. Strikamerki er jafnframt einn stærsti þjónustuaðili þráðlausra netkerfa í verslunum á Íslandi með um 200 Symbol/Motorola netkerfi í þjónustu.
PrentlausnirVið höfum notað BarTender hugbúnað til að stýra prentun frá upplýsingakerfum á nettengda prentara með frábærum árangri hjá fjölmörgum viðskiptavinum. Þessi leið einfaldar prentun til muna og sparar vinnu við uppsetningu á skýrslum frá kerfunum. Við bjóðum einnig prentun beint frá handtölvum á beltisprentara, hvort heldur er fyrir kvittanir við afgreiðslu úti í bæ eða hillumiða í verslunum. IceLabel prentstjórnkerfi hefur ekki verið notað í verslunum enda er kerfið hannað fyrir þarfir framleiðslufyrirtækja.
Hafðu samband við söluráðgjafa í síma 575 1900 eða með tölvupósti á sala@strikamerki.is og kynntu þér hvaða valkostir henta þér.
|

