hugbúnaður

Strikamerki selur hugbúnað frá leiðandi framleiðendum og þróar SagaPOS afgreiðsluhugbúnað, IceLink handtölvulausnir og IceLabel prentstjórnkerfi, sem njóta mikilla vinsælda hjá íslenskum fyrirtækjum.   

SagaPOS verslunarhugbúnaður

Strikamerki sameinaðist KLS í mars 2007 og tók þar með við þróun SagaPOS verslunarhugbúnaðar, sem nýtur mikilla vinsælda hérlendis. Meira >>

 

Handtölvuhugbúnaður

 
 
 
Icelink lausnir
 
 
 
 
Wavelink

 
 
Verslunarferli á handtölvu
 
 
 
Wavelink Telnet Client
 
 
Vöruhúsa- og flutningaferli á handtövlu
 
 
 
Wavelink Studio
 
 
Eftirlit og þjónusta úti í bæ á handtölvu
 
 
 
Wavelink Mobility Center umsjónarkerfi
 
 


Icelink handtölvuhugbúnaður
frá Strikamerki nýtur mikilla vinsælda meðal 
íslenskra fyrirtækja en þetta er hugbúnaður
sem keyrir á Intermec og Motorola/Symbol
handtölvum og tengist upplýsingakerfum
yfir þráðlaus staðarnet eða með GPRS.
Hugbúnaðurinn er til í margskonar 
útfærslum fyrir verslanir, vöruhús, flakkandi 
sölu, þjónustu, vöruflutninga eða eftirlit. Við höfum einnig þróað fjölda sérlausna fyrir
aðila á borð við Vífilfell, Samherja, HHÍ,
og Kirkjugarða Reykjavíkur. 

 

 
 
 


Wavelink er leiðandi á sviði 
hugbúnaðar 
fyrir handtölvur en Strikamerki er Certified
Wavelink Partner.
 
Við seljum Wavelink Telnet Client og
Wavelink Studio fyrir "Thin Client" 
tengingar við upplýsingakerfi og
Avalanche Mobility Center fyrir stjórnun
handtölva og þráðlausra netkerfa.

 

Prentstjórnhugbúnaður

 
 
 
Bartender
 
 
 
 
IceLabel

 
 
Miðahönnun og prentun
 
 
 
Miðaprentun í fiskiskipum
 
 
Sjálfvirk prentvinnsla með Commander
 
 
 
Stjórnun sjálfvirkrar álímingar
 
 
Tenging við gagnagrunna
 
 
 
Marel MPS framleiðsluskráning
 
 

BarTender frá Seagull er einn mest notaði 
miðaprenthugbúnaður í heimi. Strikamerki er
endursöluaðili á BarTender og við höfum sett
upp prentstjórnun hjá fjölda fyrirtækja þar sem
BarTender tekur við einföldum textaskrám frá
upplýsingakerfum á borð við Microsoft 
Dynamics Nav (Navision) eða Ax (Axapta) og
rennir þeim saman við BarTender miðaform
og prentar á nettengda miðaprentara. Þetta
fyrirkomulag einfaldar prentvinnslur til muna því það þarf ekki lengur að búa til flóknar 
skýrslur í upplýsingakerfunum heldur 
eingöngu að skila út gögnum fyrir BarTender. Við erum sérfræðingar í hönnun og uppsetningu þessara lausna.
 
 
 


IceLabel prenthugbúnaður frá Strikamerki er 
notaður í íslenskum sjávarútvegi og framleiðslu-
fyrirtækjum við daglega miðaprentun og
stjórnun sjálfvirkra álímingakerfa. 

Hönnun IceLabel byggir á áratugarsamstarfi
við sjávarútvegs- og framleiðslufyrirtæki; 
- einfalt viðmót á snertiskjá
- keyrir á PC tölvum 
  (sjálfstæðum eða nettengdum)
- miðahönnun í BarTender
- sjálfvirkur stuðningur við SH vinnustöð
  (staðall fyrir miðaútlit Icelandic Group)
- fullkomnar stýringar fyrir dagsetningar, lotur,
  GS1 strikamerki (EAN-128) o.s.frv.
- tenging við iðnstýringar
- framleiðsluskráning sem tengist Marel MPS
  með XML/vefþjónustu