Strikamerki hf.Strikamerki starfar á sviði upplýsingatækni og útvegar fyrirtækjum lausnir fyrir rafrænan rekstur - þar á meðal þráðlaus netkerfi og handtölvur í vöruhús, GPRS handtölvulausnir fyrir sölu og þjónustu úti í bæ, prentlausnir fyrir sjávarútveg og framleiðslufyrirtæki og hug- og vélbúnað fyrir verslanir. Mörg öflugustu fyrirtæki landsins kjósa að eiga viðskipti við Strikamerki og við erum viðurkenndur sölu- og þjónustuaðili stærstu vél- og hugbúnaðarframleiðeinda heims á okkar fagsviði - þeirra á meðal eru Intermec, Motorola (Symbol), Datalogic, Zebra, Datamax, DigiPOS, Wavelink, Seagull og MCL. Strikamerki þróar og selur eigin hugbúnaðarlausnir undir vörumerkjunum SagaPOS verslunarkerfi, IceLink handtölvulausnir, IceLabel prentlausnir og IceMonitor gagnastýringar. Þessar vörulínur eru í notkun hjá fjölmörgum íslenskum fyrirtækjum. IceLink handtölvulausnir hafa verið settar upp hjá um 50 fyrirtækjum og keyra á um 400 handtölvum, IceLabel prentlausnir eru í notkun hjá fjölmörgum framleiðslufyrirtækjum, t.d. nota flest frystiskip flotans IceLabel fyrir prentstjórnun við kassa- og brettamerkingar. Þjónusta Strikamerkis nær til ráðgjafar á sviði lausna fyrir rafrænan rekstur, verkefnastjórnunar, hönnunar hugbúnaðar, innleiðingar lausna, rekstrar- og viðgerðarþjónustu. Tæknimenn okkar eru vel menntaðir og reyndir fagmenn, sem hljóta markvissa þjálfun hjá framleiðendum tæknibúnaðar sem við seljum. Fyrirtækið er í eigu lykilstjórnenda auk nokkurra einstaklinga sem allir hafa víðtæka reynslu af rekstri upplýsingatæknifyrirtækja. |

